Kryddsmjör

Kryddsmjör getur verið punkturinn yfir i-ið með grillmatnum.

Fyrir fisk:
100 g smjör
3-4 hvítlauksrif, kramin
1 tsk. sítrónusafi
1/2 tsk. rifinn sítrónubörkur
1 tsk. sítrónu- eða lime pipar

Fyrir kjöt:
100 g smjör
3-4 hvítlauksrif, kramin
1 tsk. nýmulinn svartur pipar
1 tsk. Chilisalt

Smjörið sem verður að vera mjúkt, er sett í skál, bragðefnunum bætt útí og allt hrært vel saman.

Ummæli