Gráðostasósa

Annaðhvort elskar maður gráðost eða fílar hann alls ekki, þessi sósa er fyrir þá fyrrnefndu og hún smellpassar hvort sem er með grilluðu kjöti eða sem ídýfa með brytjuðu grænmeti.



1 gráðostur
1 dós sýrður rjómi (10%)
nýmulinn svartur pipar

Hrærið sýrða rjómann í dósinni svo hann verði sléttur og kekkjalaus. Setjið gráðostinn í skál og myljið með gaffli, malið svartan pipar yfir, magnið fer eftir smekk, en mér finnst gott að setja svolítið mikið. Hrærið sýrða rjómanum saman við. Það er gott að leyfa sósunni að standa í ca. 1/2 til heila klukkustund meðan máltíðin er undirbúin.

Ekki spillir gott rauðvín með ;)

Bon appetit!

Ummæli

  1. 5 x N/A merit casino | XN Online
    5 x N/A merit casino. XN Online deccasino I want 메리트 카지노 주소 to try the online casino game game on the 바카라 web with no installation or download required!

    SvaraEyða

Skrifa ummæli