Bláberjamuffins


1 1/4 bolli sykur
115 g smjör, mjúkt
2 egg
2 bollar hveiti
1/2 bolli mjólk
2 tsk lyftiduft
1 1/2 tappi vanilludropar
2 bollar ný eða frosin bláber

Hrærið sykur og smjör uns það verður ljóst og létt, bætið við einu eggi í senn og hrærið stutta stund á milli. Bætið hveitinu smám saman við og þynnið með mjólkinni, setjið vanilludropa og loks lyftiduft. Handhrærið berjunum saman við. Setjið í muffins form og bakið við 180°C í 30-40 mín. Ef berin eru ný er bökunartíminn styttri.

Bon appetit!

Ummæli