Bláberjasulta

2 kg bláber
1.4 kg sykur
1 pakki gult Melamin

Berin skoluð og rusl hreinsuð. Sett ásamt sykrinum í pott og suðan látin koma upp, hitinn lækkaður og látið malla í 5 mín, hrært í af og til. Melamininu hrært saman við og látið malla áfram í 5 mín. Sett heit í sjóðandi heitar krukkur og lokað.

Sykurinn má minnka alveg niður í 500 g á kíló berja og nota þá blátt Melamin í staðinn.


Bon appetit!

Ummæli