Hrökkbrauð

3 dl haframjöl
4 dl fræblanda
2 dl spelthveiti
1 tsk lyftiduft
1 1/2 tsk salt
1 dl olía
2 dl vatn

Blanda þurrefnum saman og setja oliu og vatn útí.
Hræra í jafnt deig
Deila í 2 kúlur og fletja út á milli 2ja bökunarpappíra frekar þunnt, setja á bökunarplötu.
Skera út í stykki með pizzahníf og baka við 175 til 200 gráður í 15 til 20 mín.

Ef vill má strá rifnum osti, graskersfræjum eða Maldon salti yfir brauðið áður en það er bakað.


Bon appetit!

Ummæli