3 eggjahvítur
150 g sykur
100 g gróft kókosmjöl
1 pk Síríus hvítir súkkulaðidropar
Þeytið eggjahvíturnar og bætið sykrinum smám saman útí uns blandan er stíf og glansandi. Bætið kókosmjöli og hvítu súkkulaði varlega saman við með sleikju.
Setjið með teskeið á bökunarplötu og bakið í 10-12 mín. við 150°C.
Bon appetit!
Ummæli
Skrifa ummæli