Vatnsmelónusalat

1/4 - 1/2 vatnsmelóna e. stærð
1 rauðlaukur
1 krukka ólívur (grænar e. svartar e. smekk)
Mozarella ostur eða hreinn fetaostur

Vatnsmelónan skorin í stóra teninga, laukurinn í finar sneiðar og síðan til helminga. Ef þið notið Mozarella er hann skorinn í vænar sneiðar og síðan í bita.

Öllu blandað saman. Mjög gott með teriyaki laxinum :)

Bon appetit!

Ummæli