Lax teriyaki

2 laxasporðar eða heilt flak
1 dl teriyaki sósa
200 g sveppir, fínsaxaðir
5 sm ferskur engifer, fínt saxaður
3-5 hvítlausgeirar (e. smekk) fínsaxaðir
ferskur kóríander

Laxinn er settur í eldfast form, sveppirnir saxaðir og dreift yfir laxaflakið. Engifer og hvítlauk hrært saman við teriyaki sósuna og hellt yfir. Bakað í 200°C heitum ofni í ca. 15 mínútur. Slatta af fersku kóríander dreift yfir.

Borið fram með soðnum hrísgrjónum og vatnsmelónusalati.

Bon appetit!

Ummæli