Waldorf salat


3-4 sellerí stönglar
3 græn afhýdd epli
græn eða rauð vínber, góður klasi
250-300 g mæjones (nota alltaf létt - líka á jólunum - jafnvel til helminga 10% sýrðan rjóma og létt mæjó)
1 peli rjómi, þeyttur
smá salt (hnífsoddur)
safi úr 1/2 sítrónu
1 tsk sykur (eða sætuefni)
50 g valhnetukjarnar (geyma hluta til að strá yfir salatið í lokin)

Byrjið á að hræra saman í sósuna og smakka hana til, bætið síðan ávöxtunum út, þá hnetunum. Geymið í nokkrar klukkustundir í kæli fyrir neyslu, jafnvel gott að gera daginn áður.

Berið fram skreytt með valhnetukjörnum og vínberjum.

Ómissandi með hangikjötinu eða hamborgarahryggnum :)

Bon appetit!

Ummæli