Salat frá Provence héraði

4 soðnar kartöflur, skornar í fjóra báta
3 harðsoðin egg, skorin í fjóra báta
1 dós niðursoðinn túnfiskur, látið olíuna renna vel af honum
Baunir (ég sleppi þeim oftast v. ofnæmis, en notið gjarnan strengjabaunir eða e. eigin smekk)
3 stórir tómatar
½ agúrka (taka kjarnann úr)
10 svartar ólífur
Ansjósur og kapers e. smekk
Ferkst basil, góð lúkufylli
Grænt salat
 
Frönsk salatsósa
3 msk olífuolía
1 msk dijon sinnep
1 msk rauðvíns-eða hvítvínsedik
salt og pipar eftir smekk 

Byrjið á því að setja græna salatið á disk og dreifið svo öllu hinu fallega hráefni ofan á salatið.
Dressingin er sett síðust yfir og skreytt með basil.

Gott að hafa franskt brauð með


Bon appetit!

Ummæli