Jólasalat mömmu

Mamma gerði alltaf þetta salat og hafði með hamborgarahryggnum á aðfangadagskvöld.



1/2 hvítkálshaus
1 dós kurlaður ananas 
1 dl gúrku relish
2-3 msk mæjones
1 peli þeyttur rjómi

Hvítkálið er rifið mjög fínt. Hrært saman við mæjonesið og ananasinn sem hefur verið látinn standa í sigti smástund. Þeyttum rjóma hrært saman við og smakkað til með pickles. Ef gúrku relish er ekki fáanlegt má kurla súrsaðar gúrkur í staðinn.

Bon appetit!

Ummæli