Tortillukökur

Án gers, dugar í 12 kökur

3 dl volgt vatn
1 msk ólífuolía
1/2 msk salt
1 tsk lyftiduft
100 g gróft maísmjöl
350 g sigtað spelt

Setjið vatn í skál og setjið olíu og salt saman við. Blandið þurrefnunum saman og bætið saman við vökvann. Hnoðið saman uns deigið er kekkjalaust. Skiptið deiginu í 12 hluta og fletjið út með kökukefli uns þær eru næfurþunnar. Bakið við meðalhita á pönnukökupönnu (má nota aðra gerð af pönnu) í um það bil 15 sekúndur á hvorri hlið.

Ummæli