Súkkulaðibitakökur Drafnar



300 g smjör
200 g sykur
200 g púðursykur
2 tsk vanillusykur
2 egg
400 g hveiti
1 tsk natron
100 g hnetur, brytjaðar
150 g súkkulaði, brytjað

Deigið hrært saman og hnetum og súkkulaði bætt saman við. Sett með teskeið á bökunarpappír á ofnplötur. Bakaðar við 200°C í 10-15 mín.

Kökurnar renna svolítið út á plötunni og gæta þarf að hafa nóg bil á milli þeirra áður en þær fara í ofninn.

Bon appetit!

Ummæli