Rjómakaramellur

1 msk smjör
2 dl rjómi
2 dl sykur
1 dl ljóst síróp
1 tsk vanillusykur

1 tsk matarolía - til að smyrja formið

Setjið allt saman í pott og látið malla þangað til það þykknar. Karamellan er tilbúin þegar þú getur mótað litlar kúlur úr dropa sem fellur í glas af köldu vatni.

Þá er karamellunni hellt í smurt fat, þegar hún hefur kólnað er hún skorin í teninga.

Ummæli