Karmellukjúklingur

1 kjúklingur*

Sósa:
1 dl Barbeque sósa
1/2 dl soya sósa
1/2 dl aprikósumarmelaði
1 dl púðursykur

Kjúklingurinn er settur í eldfast mót. Sósuefnið er sett í lítinn skaftpott og suðan látin koma upp. Sósunni er síðan hellt yfir kjúklinginn.

Stundum setjum við saxað grænmeti yfir (samviskunnar vegna):
1-2 tómatar
1/2 gúrka
1 rauð paprika
1 laukur (eða púrrulauk)
lítil dós ananas (4-5 sneiðar)
fjórðungur úr Kínakáli

Rétturinn er bakaður í ofni í 45 mínútur við 200°C

Borðist án samviskubits með soðnum hýðishrísgrjónum

*Hlutaður í bita, eða notaðir kjúklingabitar sem þarf að fitu- og hamsnyrta fyrir notkun

Ummæli