Jólalegri jólakaka

150 g smjör
150 g sykur
2 egg
200 g hveiti
kúfuð tsk lyftiduft
150 g suðusúkkulaði, gróft saxað
75 g rúsínur*
75 g döðlur*
100 g rauð og græn kokteilber
100 g dökkt súkkulaði, brytjað

Smjör og sykur hrært saman, uns ljóst og létt. Þá er eggjunum bætt við, einu í senn. Þá er þurrefnunum blandað saman við smátt og smátt. Að lokum er rúsínum, döðlum, kokteilberjum og súkkulaði bætt varlega saman við.

Bakað í jólakökuformi í rúman klukkutíma við 175°C


* Gjarnan vættar í sérrí yfir nótt

Ummæli