Buff Stroganoff

250 g sveppir
1 laukur í þunnum sneiðum
3 msk smjör
750 g beinlaust nauta- eða lambakjöt, skorið í strimla
1/4 bolli hveiti
1 bolli hrein jógúrt
2 tsk kjötkraftur
1 msk paprikuduft
1 bolli vatn
2 msk tómatpuré
1 tsk Worchestershiresósa
1 tsk salt

Brúnið lauk og sveppi og síðan kjötið í góðum potti eða djúpri pönnu. Blandið saman við kryddi, smá hveiti, kjötkrafti, tómatpuré og vatni og látið smásjóða þar til kjötið er farið að meyrna (ca. 30-40 mín). Bætið jógúrti saman við og látið suðuna koma upp aftur. Bragðbætt með sérrí ef vill, eða salti og pipar. Borið fram með kartöflumús eða soðnum hrísgrjónum og fersku salati.

Ummæli